„Ekki búnir að gefast upp“

Manuel Pellegrini og Brendan Rodgers á Anfield í dag.
Manuel Pellegrini og Brendan Rodgers á Anfield í dag. AFP

Manuel Pellegrini knattspyrnustjóri Manchester City segir að liðið þurfi að bæta sinn leik ætli það að verja meistaratitilinn en City beið í dag lægri hlut fyrir Liverpool á Anfield, 2:0.

„Við gefumst ekki upp í baráttunni um titilinn en það er ljóst að við þurfum að bæta okkar leik og reyna að vinna okkar næsta leik. Þú veist aldrei hvað gerist í fótboltanum en ég vil sjá menn bregðast við þessu tapi í næsta leik,“ sagði Pellegrini.

Manchester City er í öðru sæti deildarinnar, er fimm stigum á eftir Chelsea sem á leik til góða. City mætir Leicester í deildinni á miðvikudaginn en Chelsea etur kappi við West Ham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert