„Tapar ekki hæfileikunum á einni nóttu“

Di Maria hefur átt erfitt uppdráttar.
Di Maria hefur átt erfitt uppdráttar. EPA

Wayne Rooney fyrirliði Manchester United segir að Argentínumaðurinn Ángel Di Maria eigi eftir að gera það gott fyrir félagið þrátt fyrir að honum hafi ekki gengið sem skildi í búningi Manchester-liðsins undanfarin misseri.

United pungaði upphæð að jafnvirði rúmlega 12 milljörðum króna fyrir Di Maria þegar það keypti hann frá Real Madrid síðastliðið sumar en Argentínumaðurinn hefur valdið miklum vonbrigðum og í gær var honum kippt útaf eftir fyrri hálfleikinn í leiknum gegn Sunderland.

„Hann er frábær leikmaður. Þú tapar ekki hæfileikum þínum á einni nóttu. Vonandi kemst hann aftur í sitt besta form og byrjar og sýnir í hvað honum býr. Ég hef fulla trú á honum og ég er sannfærður um að hann að muni láta til sín taka með okkur frá þessari stundu,“ segir Rooney, sem skoraði bæði mörk sinna manna í sigrinum á móti Sunderland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert