„Vandræðaleg frammistaða“

Eliaquim Mangala í baráttu við Raheem Sterling á Anfield í …
Eliaquim Mangala í baráttu við Raheem Sterling á Anfield í dag. AFP

Gary Neville einn af sérfræðingum Sky Sport segir að frammistaða Englandsmeistara Manchester City í leiknum gegn Liverpool á Anfield í dag hafi verið vandræðaleg.

City tapaði leiknum 2:1 og er fimm stigum á eftir Chelsea í öðru sæti deildarinnar en Chelsea á leik til góða.

„Ef ég væri leikmaður Manchester City þá væri ég skömmustulegur yfir því hversu auðvelt var að spila í gegnum liðið. Við erum að dæma Manchester City sem meistara. Það verður að vera bæting á milli ára en við erum að sjá á þessu liði að það er að gera sömu mistökin aftur og aftur,“ sagði Neville.

„Það er eitthvað sem er ekki rétt hjá liði City og það verða að verða breytingar í lok leiktíðarinnar,“ sagði Neville

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert