Coutinho leikmaður febrúarmánaðar

Philippe Coutinho fagnar markinu gegn City í gær.
Philippe Coutinho fagnar markinu gegn City í gær. AFP

Phillippe Coutinho, sóknarmaður Liverpool, hefur verið valinn leikmaður febrúarmánaðar af ensku leikmannasamtökunum sem kynntu það rétt í þessu.

Brasilíumaðurinn spilaði frábærlega fyrir félagið í mánuðinum og átti stóran þátt í því að Liverpool er það félag sem hefur hlotið flest stig allra liða í ensku úrvalsdeildinni á árinu, með 20 stig af 24 mögulegum. Liðið er í 5. sæti með 48 stig, tveimur á eftir Manchester United í 4. sætinu og þremur á eftir Arsenal í 3. sætinu.

Coutinho skoraði glæsilegt mark í slá og inn gegn Southampton sem sjá má hér að neðan en hann skoraði einnig sigurmark Liverpool gegn Eiði Smára og félaga í Bolton í upphafi mánaðarins, einnig í slá og inn.

Mark Coutinho gegn Manchester City í gær þann 1. mars taldist ekki með af augljósum ástæðum, þ.e. ekki var um leik í febrúar að ræða.

Markið gegn Bolton í FA bikarnum:

Markið gegn City í gær taldist ekki með:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert