Endurkoma Sols Campbells á hægri kantinn?

Sol Campbell lék á Herminator Invitational mótinu í Vestmannaeyjum árið …
Sol Campbell lék á Herminator Invitational mótinu í Vestmannaeyjum árið 2009.

Fyrrverandi varnarmaður Arsenal, Sol Campbell, gæti verið að snúa aftur til félagsins en nú í nýrri stöðu, á hægri kantinn. Þessi fertugi kappi, sem lék á sínum tíma 135 leiki fyrir Arsenal og 255 leiki fyrir Tottenham, hefur sagst sækjast eftir stöðu þingsmanns Íhaldsflokksins í Kensington-hverfi Lundúnaborgar.

Campbell gaf það út í morgunþætti Sky-sjónvarpsstöðvarinnar að hann myndi reyna að verða fulltrúi flokksins í þessu annars afar örugga sæti í einu fínasta hverfi Lundúnaborgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert