Handtekinn fyrir að sofa hjá 15 ára stúlku

Adam Johnson með boltann í leik gegn Tottenham.
Adam Johnson með boltann í leik gegn Tottenham. AFP

Adam Johnson, knattspyrnumaður Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stundað kynlíf með stúlku undir lögaldri.

Johnson var handtekinn á heimili sínu í morgun og er í haldi lögreglu sem vinnur að rannsókn málsins. Samkvæmt frétt Daily Mail er stúlkan aðeins 15 ára gömul.

Johnson, sem á að baki 12 A-landsleiki fyrir England, hefur verið hjá Sunderland frá árinu 2012. Hann var áður hjá Manchester City en hóf ferilinn með Middlesbrough.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert