Ibe frá í tæpan mánuð

Jordon Ibe.
Jordon Ibe. AFP

Hinn ungi og bráðefnilegi kantmaður Liverpool, Jordon Ibe verður frá næstu fjórar vikurnar vegna meiðsla en hann kennir sér meins í hné.

Ibe meiddist þegar Liverpool féll úr leik í Evrópudeildinni gegn Besiktas síðastliðinn fimmtudag og hafa læknar liðsins staðfest að um smávægileg meiðsli í liðbandi í hné sé að ræða og verður kappinn frá í þrjár til fjórar vikur.

Fréttirnar eru slæmar fyrir Liverpool endar hefur Ibe spilað afar vel með liðinu frá því að hann steig inn í aðalliðið fyrr á árinu.

Góðu fréttirnar úr röðum Liverpool eru hins vegar þær að ný styttist í endurkomu Stevens Gerrards en fyrirliði Liverpool mun annaðhvort snúa aftur á miðvikudag gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni eða á sunnudag í bikarleiknum gegn Blackburn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert