Terry þvertekur fyrir endurkomu í landsliðið

John Terry með enska deildarbikarinn í gærdag.
John Terry með enska deildarbikarinn í gærdag. AFP

Eftir frábæra frammistöðu Johns Terrys með Chelsea á tímabilinu hafa sparkspekingar velt því fyrir sér hvort hann geti ekki enn gert heilmikið gagn fyrir enska landsliðið. Terry var spurður að því eftir leikinn en svar hans var einfalt.

„Nei, þetta er mjög einfalt. Ég vil ekki fara út í þá sálma núna. Það er frábært að vera kominn aftur á Wembley og andrúmsloftið er eitt það besta sem ég hef spilað í en að spila aftur fyrir England hvarflaði aldrei að mér. Ég hef undirstrikað þá ákvörðun áður,“ sagði Terry.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert