Þurfum að vinna, vinna og vinna

Wilfried Bony.
Wilfried Bony. EPA

Tap Manchester City gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um helgina þýðir að liðið þarf að vinna hvern einasta leik hér eftir, segir Wilfried Bony, framherji liðsins.

City missti af tækifærinu til að minnka forskot Chelsea á sunnudag en þeir eru enn fimm stigum á eftir Chelsea í toppsætinu sem á nú leik til góða.

„Þetta var svekkjandi, við höfum gert okkur þetta erfitt fyrir núna,“ sagði Bony.

„Ef Chelsea vinnur sinn leik sem þeir eiga inni þá verður þetta enn erfiðara fyrir okkur að ná þeim en það er enn von, það eru 11 leikir eftir og við þurfum að vinna hvern einasta leik. Við þurfum að vera jákvæðir og ná öllum stigum. Við þurfum að vinna, vinna og vinna og vona að Chelsea muni tapa stigum. Þetta er erfitt núna hjá okkur en við verðum að vona að við getum gert þetta,“ sagði Bony.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert