Cech mun fara fyrir risaupphæð

Petr Cech og Thibaut Courtois fagnar enska deildarmeistaratitlinum. Cech spilaði …
Petr Cech og Thibaut Courtois fagnar enska deildarmeistaratitlinum. Cech spilaði úrslitaleikinn gegn Tottenham. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir Petr Cech varamarkvörð liðsins falan aðeins fyrir mjög háa upphæð fari svo að kappinn vilji leita á aðrar slóðir en Cech hefur þurft að sætta sig að vera meirihluta leiktíðarinnar á bekknum þar sem Belginn Thibaut Courtois hefur haft vinninginn um sæti í byrjunarliðinu.

„Hann mun taka ákvörðun um hvað hann heldur að best sé að gera og hvað sé best fyrir framtíðina. Við þurfum bara að bíða og sjá. Ég myndi mjög svo vilja hafa hann hér áfram. En ég vil ekki vera að sóa mínum tíma í að sannfæra hann af því að ég veit að það getur enginn,“ sagði Mourinho.

„Ef hann segir mér að hann vilji fara, þá segi ég honum mína skoðun sem er sú að hann er einn af þremur bestu markvörðum í heimi. Risaupphæð,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert