Evans og Cisse kærðir - sex leikja bann?

Jonny Evans og Papiss Cisse.
Jonny Evans og Papiss Cisse. AFP

Enska knattspyrnusambandið hefur ákært þá Jonny Evans leikmann Manchester United og Papiss Cisse leikmann Newcastle en þeir fóru í hár saman og virtust hrækja á hvorn annan í  í viðureign liðanna í gær.

Dómarar leiksins sáu ekki atvikið en myndavélarnar náðu því en báðir leikmenn hafa þar til kl. 18 á föstudag að svara kærunni.

Uppfært: 17:49

Samkvæmt enskum knattspyrnulögum varðar það að hrækja á andstæðing að minnsta kosti sex leikja keppnisbanni.

 Atvikið:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert