Gætu fengið sex leikja bann (myndband)

Evans og Cisse í leiknum í gær.
Evans og Cisse í leiknum í gær. ljósmynd/twitter

Jonny Evans miðvörður Manchester United og Papiss Cisse framherji Newcastle gætu átt yfir höfði sér sex leikja bann verði þeir fundir sekir um að hafa hrækt á hvorn annan í viðureign liðanna á St.James Park í gær.

Dómarinn Anthony Taylor ræddi við leikmennina eftir atvikið sem átti sér stað í fyrri hálfleik en hvorugur þeirra fékk að líta gula spjaldið.

Aganefnd enska knattspyrnusambandsins bíður eftir að fá skýrslu frá Taylor áður en það tekur ákvörðun um það hvort leikmönnunum verði refsað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert