Hodgson vill fara með England á HM 2018

Roy Hodgson er 67 ára gamall.
Roy Hodgson er 67 ára gamall. AFP

Roy Hodgson landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu hefur tjáð knattspyrnusambandinu þar í landi að hann vilji framlenginu á samningi sínum svo hann geti farið með England á HM árið 2018 í Rússlandi. Þetta kemur fram hjá Daily Mail í kvöld.

Hodgson, sem er 67 ára gamall, er ekki reiðubúinn að hætta en núverandi samningur hans rennur út eftir EM í Frakklandi 2016.

„Í augnablikinu þá líður mér vel og ég hef engan hug til þess að gera eitthvað fyrir „minn aldur“. Ég vonast til að halda áfram í nokkur ár. Ég er fullviss um að ég muni vita hvenær það verður rétt að hætta. Ég gegni mikilvægu stafi sem ég nýt þess að vera í, við sjáum hvað hvað setur árið 2018 og 2020,“ sagði Hodgson í fjölmiðlum á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert