Mikil viðbrögð á twitter um Gylfa Þór

Gylfi Þór.
Gylfi Þór. AFP

Stuðningsmenn Swansea og Tottenham voru duglegir að koma með viðbrögð á twitter um frammistöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar eftir viðureign Tottenham og Swansea á White Hart Lane.

Gylfi, sem lék í tvö tímabil með Tottenham, skoraði síðara mark Swansea í leiknum sem Tottenham hafði betur í 3:2. Gylfi átti líka sinn þátt í fyrra marki sinna manna en eftir þrumuskot hans í stöngina skoraði Kóreumaðurinn Ki.

Hér má sjá nokkrar twitterfærslur stuðningsmanna félaganna eftir leikinn;

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert