Suárez elskar Liverpool

Brendan Rodgers.
Brendan Rodgers. EPA

„Hann elskar Liverpool. Hann er farinn og greip tækifærið til spila fótbolta í öðru landi en hann er dáður af stuðningsmönnunum hérna. Í hvert einasta skipti sem hann steig inn á æfingavöllinn gaf hann allt í það og það er það sem stuðningsmennirnir elska,“ sagði Brendan Rodgers um Luis Suárez framherja Barcelona á blaðamannafundi rétt í þessu.

Úrúgvæinn mun snúa aftur til Liverpool-borgar og leika sérstakan kveðjuleik fyrir Steven Gerrard þann 31. mars en hann er á lið frá félaginu eins og kunnugt er eftir tímabilið.

„Þetta verður frábært. Við höfum verið í samband frá því að hann fór, hann er augljóslega heimsklassaleikmaður og vildi alltaf koma aftur. Þetta verður frábært fyrir stuðningsmennina. Hann á örugglega eftir að vilja vinna þennan leik líka,“ sagði Rodgers.

Enn er óvíst með þátttöku Stevens Gerrards í leik Liverpool-liðsins gegn Blackburn á sunnudag í átta-liða úrslitum enska bikarsins en hann er ennþá tæpur vegna meiðsla. Einnig er óvíst með þátttöku franska miðvarðarins Mamadou Sakho í leiknum á sunnudag.

Luis Suárez í búningi Liverpool.
Luis Suárez í búningi Liverpool. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert