United tilbúið að selja Rafael

Rafael í baráttu við Samir Nasri.
Rafael í baráttu við Samir Nasri. AFP

Manchester United er reiðubúið að selja brasilíska bakvörðinn Rafael í sumar að því er fram kemur í enskum fjölmiðlum í dag.

Rafael, sem er 24 ára gamall, hefur ekki náð að heilla knattspyrnustjórann Louis van Gaal. Hann hefur aðeins komið sögu í níu leikjum United á tímabilinu og þrátt fyrir að vera orðinn heill heilsu var hann ekki valinn í leikmannahópinn í leikjunum á móti Sunderland og Newcastle.

Rafael kom síðast við sögu með liði Manchester United í bikarleik gegn Yeovil þann 4. janúar en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert