Terry skrifar undir hjá Chelsea

John Terry lyfti enn einum titlinum fyrir Chelsea í síðasta …
John Terry lyfti enn einum titlinum fyrir Chelsea í síðasta mánuði. AFP

John Terry fyrirliði Chelsea hefur skrifað undir nýjan árs samning við félagið. Þetta kom fram í fréttatilkynningu félagsins rétt í þessu.

Chelea spilaði sinn fyrsta leik fyrir Lundúnafélagið árið 1998 og hefur hann komið við sögu í 661 einum leik fyrir þá bláklæddu og skorað í þeim 63 mörk sem telst ansi gott miðað við varnarmann.

„Ég er alsæll með það að hafa skrifa undir framlengingu á samningi mínum við Chelsea. Eftir að hafa bætt við titli í safnið í síðasta mánuði vonast ég til þess ásamt leikmönnum og knattspyrnustjóra að halda þessari velgengni félagsins áfram gangandi,“ sagði Terry sem hefur unnið þrettán titla með Lundúnafélaginu í heildina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert