Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke City í ensku úrvalsdeildinni, hefur framlengt samning sinn við félagið og er hann nú samningsbundinn því til ársins 2018.
Hinn 51 árs gamli Hughes tók við liði Stoke fyrir tveimur árum af Tony Pulis eftir stutta dvöl hjá QPR, en hann hefur einnig stýrt Fulham, Manchester City, Blackburn og velska landsliðinu.
Stoke siglir lygnan sjó í tíunda sæti deildarinnar.