José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea er byrjaður að undirbúa næstu leiktíð og fregnir herma að hann hafi nú augastað á Andre Gomes, 21 árs gömlum miðjumanni sem leikur með Valencia.
Verðmiðinn á Gomes er 36 milljónir pundir en þessi sóknarsinnaði miðjumaður hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir vasklega framgöngu á vellinum.
Gomes kom til Valencia frá portúgalska liðinu Benfica í fyrra. Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Portúgals og á þrjá leiki að baki með A-landsliðinu.