Di María vinsælastur

Þær seljast eins og heitar lummur, treyjurnar með nafni Argentínumannsins …
Þær seljast eins og heitar lummur, treyjurnar með nafni Argentínumannsins aftan á. EPA

Hann er kannski ekki vinsælasti knattspyrnumaður Englands um þessar mundir en klæðist þó vinsælustu treyjunni.

Argentínumaðurinn hjá Manchester United, Ángel di María ber samkvæmt sölutölum íþróttavörurisans Sports Direct vinsælustu treyjuna í ensku úrvalsdeildinni en samtals kaupa 9.59% þeirra viðskiptavina sem kaupa treyju hjá verslunarkeðjunni, treyju með nafni kappans aftan á.

Sports Direct selur treyjur fyrir Arsenal, Aston Villa, Chelsea, Liverpool, Manchester United, Manchester City, Tottenham og Newcastle.

Listinn:

1. Ángel Di María - Manchester United - 9.59% seldra treyja
2. Aléxis Sánchez - Arsenal - 3.8% seldra treyja
3. Diego Costa - Chelsea - 2.27% seldra treyja
4. David de Gea - Manchester United - 2.16% seldra treyja
5. Eden Hazard - Chelsea - 2.10% seldra treyja
6. Wayne Rooney - Manchester United - 2-09% seldra treyja
7. Radamel Falcao - Manchester United - 1.99% seldra treyja
8. Steven Gerrard - Liverpool - 1.76% seldra treyja
9. Sergio Agüero - Manchester City - 1.46% seldra treyja
10. Robin van Persie - Manchester United - 1.2% seldra treyja

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert