Rooney gæti ekki spilað á Ítalíu

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney fyrirliði enska landsliðsins er ásamt liðinu á Ítalíu þar sem Englendingar mæta Ítölum í vináttulandsleik. Spurður af fjölmiðlamönnum í Tórínó hvort hann myndi íhuga það að spila á Ítalíu var svarið nokkuð skýrt. 

„Ég elska að spila í ensku úrvalsdeildinni. Ég horfði á (Gabriel) Batistuta leika fyrir Fiorentina en ég gæti ekki hugsað mér að spila á Ítalíu,“ sagði Rooney sem leiðist greinilega ekki að spila með Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert