Landsliðsframherjinn Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Bolton Wanderers sem tekur á móti Blackpool í ensku 1. deildinni í knattspyrnu klukkan 14. Óvíst var með þátttöku Eiðs Smára í leiknum en hann eignaðist fjórða barn sitt í vikunni.
Eiður Smári fór á kostum í 3:0-sigri íslenska landsliðsins gegn Kasakstan á útivelli um síðustu helgi. Hann skoraði fyrsta mark leiksins og var allt í öllu í sóknarleik liðsins.