Ætla að spila mjög vel í 90 mínútur

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United vill sjá lið sitt spila nánast fullkomlega gegn Chelsea þegar liðin mætast kl. 16 í dag. 

„Við höfum tekið framförum og spilum meira eins og lið. Við höfum náð þeim tímapunkti þar sem menn spila eins og lið, ekki sem einstaklingur. Knattspyrna er liðsíþrótt“ sagði van Gaal á blaðamannafundi fyrir leikinn um muninn á spilamennsku liðsins nú og fyrir nokkrum mánuðum.

„Það er meira jafnvægi í leik okkar. Ég trúi því að við getum spilað mjög vel en það höfum við ekki gert í 90 mínútur. Fyrst þurfum við að að spila 90 mínútur mjög vel, því náðum við ekki gegn Cit,“ sagði Gaal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert