Óþægilegt viðtal við Van Gaal (myndband)

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, var frekar þurr á manninn þegar hann ræddi við íþróttafréttamann BBC eftir leik sinna manna gegn Chelsea á Stamford Bridge í gær.

Hollendingurinn hefur oft verið sagður hrokafullur og leiðinlegur. Það skal ósagt látið hér hvort það sé rétt eða ekki en altént var Van Gaal ekki sá skemmtilegasti í þessu viðtali sem var á köflum mjög óþægilegt.

Sjá viðtalið við Van Gaal

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert