Við yfirspiluðum Liverpool

Tim Sherwood gat fagnað vel í dag.
Tim Sherwood gat fagnað vel í dag. AFP

Tim Sherwood, knattspyrnustjóri Aston Villa, var afar ánægður með spilamennsku sinna manna gegn Liverpool í dag í undanúrslitum enska bikarsins en Villa-menn höfðu betur, 2:1.

„Við yfirspiluðum Liverpool, ef ég á að vera hreinskilinn. Við sköpuðum mörg færi og þeir brugðu því á það ráð að þruma boltanum fram,“ sagði Sherwood.

„Úrslitaleikurinn verður rosalegur. Þú getur ekki farið auðvelda leið að þessum bikar. Ef þú vinnur hann þá þarftu að vinna þá bestu og Arsenal-liðið er með þeim betri,“ sagði Sherwood.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert