Gündogan á leið til Manchester United

Ilkay Gündogan í leik með Dortmund gegn Juventus.
Ilkay Gündogan í leik með Dortmund gegn Juventus. EPA

Ilkay Gündogan miðvallarleikmaður þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dortmund er á leið til Manchester United í sumar að því er heimildir Sky Sports herma.

Gündogan, sem er 24 ára gamall á eitt ár eftir af samningi sínum við Dortmund og er United reiðubúið að punga út 21,5 milljónum punda fyrir leikmanninn en sú upphæð jafngildir tæpum 4,5 milljörðum íslenskra kóna.

Gündogan er fæddur í Þýskalandi en foreldrar hans eru tyrkneskir. Hann hefur leikið með Dortmund frá árinu 2011 en þar áður var hann í herbúðum Nürnberg en hann hóf feril sinn hjá Bochum. Gündogan á að baki 9 leiki með þýska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert