Liverpool vann í endurkomu Katrínar

Katrín Ómarsdóttir.
Katrín Ómarsdóttir.

Katrín Ómarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, tók þátt í sínum fyrsta deildaleik á árinum með Englandsmeisturum Liverpool í gær þegar liðið vann góðan sigur á Manchester City, 2:1.

Katrín missti af fyrstu þremur leikjunum vegna höfuðhöggs sem hún fékk á æfingu seinnipart vetrar en hún varð þá einnig að draga sig út úr landsliðshópi Íslands í Algarve-bikarnum.

Hún spilaði síðustu 10 mínúturnar gegn City í gær og var ánægð með það eins og sjá má á Twitter-færslu hennar hér fyrir neðan.

Sigurnn var dýrmætur fyrir Liverpool sem hafði tapað tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum en er nú komið í þriðja sæti deildarinnar með 6 stig. Chelsea er með 12 stig og Arsenal 10 í tveimur efstu sætunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert