Ferli Balotelli hjá Liverpool lokið

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Dagar ítalska sóknarmannsins Mario Balotelli hjá Liverpool eru taldir miðað við þau skilaboð sem hann fékk frá Brendan Rodgers, stjóra félagsins.

Rodgers sendi skýr skilaboð hvað Balotelli varðar með því að velja hann ekki í leikmannahópinn sem heldur til Finnlands og mætir HJK Helsinki í síðasta undirbúningsleik sínum fyrir tímabilið.

Balotelli fór heldur ekki með Liverpool-liðinu til Ástralíu og Asíu svo ljóst má vera að Ítalinn er ekki lengur inni í myndinni hjá Rodgers sem keypti hann frá AC Milan í fyrra fyrir 16 milljónir punda.

Ítalska liðið Lazio gæti orðið næsti viðkomustaður Balotelli og félagið ku hafa sett sig í samband við Liverpool um hugsanleg kaup á framherjanum.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert