Leicester færist nær Inler

Gökhan Inler.
Gökhan Inler. FABRICE COFFRINI

Samkvæmt íþróttafréttamanninum Gianluca Di Marzio færist svissneski landsliðsmaðurinn Gökhan Inler, sem leikur fyrir Napoli á Ítalíu, nær Leicester City. 

Inler er tilbúinn að yfirgefa Napoli til þess að leika á Englandi og hefur þegar verið orðaður við önnur félög í úrvalsdeildinni, þar á meðal Watford. Verðmiðinn á Inler er talinn vera 2-3 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert