„Cech bestu kaupin“

Petr Cech.
Petr Cech. AFP

Rio Ferdinand, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, og nú sparkspekingur hjá BT Sport á Englandi segir að Petr Cech séu bestu kaupin í sumar en Arsenal fékk tékkneska markvörðinn til liðs við sig frá Chelsea í sumar.

„Arsenal gerði bestu kaupin í deildinni. Hann er geysilega mikilvægur og með hann í markinu á liðið meiri möguleika á að vinna deildina. Hins vegar held ég að Chelsea verði liðið sem aðrir þurfa að vinna. Chelsea er með frábæran leikmannahóp og er að mínu mati sigurstranglegasta liðið,“ segir Rio en keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi.

Cech varði mark Arsenal gegn sínum gömlu félögum á Wembley í dag þegar Arsenal hafði betur gegn Chelsea, 1:0, í leiknum um Samfélagsskjöldinn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert