Pedro lofað stóru hlutverki hjá United

Pedro.
Pedro. AFP

Pedro, kantmaðurinn knái í liði Barcelona, hefur fengið þau skilaboð frá Louis van Gaal, knattspyrnustjóra Manchester United, að hann verði í stóru hlutverki í nýrri sóknarlínu liðsins komi hann til félagsins.

United hefur verið á höttunum eftir Pedro undanfarnar vikur og Van Gaal hefur lagt sitt lóð á vogarskálarnar með því að tjá leikmanninum að hann verði í stóru hlutverki með Wayne Rooney og Memphis Depay í 4-3-3 leikkerfi liðsins.

Ákvæði eru í samningi Pedro við Barcelona að félög geti keypt hann út fyrir 21 milljón punda og nú þegar Manchester United er búið að losa sig við Ángel Di Maria fyrir 44 milljónir punda er félagið reiðubúið að greiða uppsett verð fyrir leikmanninn.

Nú er það bara undir Pedro sjálfum að ákveða hvað hann gerir en Luis Enrique, þjálfari Börsunga, hefur látið hafa það eftir sér að hann vilji gjarnan halda honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert