Mata ánægður með Martial

Mata og Martial í leik með United.
Mata og Martial í leik með United. AFP

Spænski landsliðsmaðurinn Juan Mata hrósar nýjasta leikmanni Manchester United, Anthony Martial, og segir hann gæðaleikmann. Mata segir að Frakkinn ungi geti gert fleira en bara skora mörk.

Martial, sem gekk í raðir United frá Monaco, hefur skorað fjögur mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum sem leikmaður Manchester United og staðið sig vonum framar. „Ég vissi af honum áður en hann kom til okkar í Manchester. Ég hafði horft á nokkra leiki með honum hjá Monaco,“ sagði Mata við Sky Sports.

„Hann stendur sig frábærlega. Hann er vissulega mjög ungur en hefur strax náð að skora nokkur mörk, sem er gott. Hann vinnur vel, hreyfir sig mikið og er duglegur. Hann er góður strákur,“ bætti Mata við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert