Fyrrum leikmaður Wigan fannst látinn

mbl.is/AFP

34 ára gamall fyrrum leikmaður enska knattspyrnuliðsins Wigan og landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar er látinn.

Steve Gohouri fannst látinn í ánni Rín í vesturhluta þýsku borgarinnar Krefeld en um miðjan desember var tilkynnt um hvarf hans eftir að hann hafði farið í jólagleði hjá þýska liðinu TSV Steinbach. Hann ætlaði síðan að heimsækja fjölskyldu sína í París en hann kom aldrei þangað.

Gohouri lék 42 leiki með Wigan á árunum 2010 til 2012 og þá lék hann 12 landsleiki fyrir Fílabeinsströndina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert