Wayne Rooney fyrirliði enska landsliðsins hefur verið valinn besti leikmaður landsliðsins fyrir árið 2015 í kosningu stuðningsmanna enska landsliðsins.
Rooney, sem er þrítugur, varð á árinu markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi þegar hann skoraði sitt 50. landsliðsmark í 2:0 sigri gegn Sviss í september. Hann skoraði fimm mörk í átta landsleikjum á árinu.
Rooney hlaut 37% atkvæða í fyrsta sæti en þetta er í fjórða skiptið sem hann hlýtur þessa viðurkenningu. Jack Butland, markvörður Stoke, var valinn besti leikmaður U21 árs landsliðsins.