„Rétt hjá Louis að ég sé feitur“

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Neil Custis íþróttafréttamaður á enska blaðinu The Sun hefur upplýst að hann sé maðurinn sem Louis van Gaal skaut á eftir leik Manchester United og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á St.James í fyrrakvöld.

„Þú líka þarna feiti,“ sagði Van Gaal við fréttamanninn þegar hann strunsaði út af fréttamannafundi eftir leikinn en stjóri United var ósáttur við þá gagnrýni sem Wayne Rooney hefur fengið hjá bresku pressunni.

„Það er rétt hjá þér Louis. Ég er feitur,“skrifar Custis í blað sitt í dag.

„Ég fór í aðgerð á hné fyrir fjórum mánuðum síðan og það hefur komið í veg fyrir að ég hafi getað farið út að hlaupa og í líkamsræktina. Þess vegna hef ég bætt á mig 12 kílóum. En ég er að reyna að losna við kílóin með því að vera þurr í janúar, vera rólegur í febrúar og fá mér einkaþjálfara,“ skrifar Custis.

Neil Custis.
Neil Custis. Ljósmynd/twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert