Townsend á leið til Newcastle

Andros Townsend.
Andros Townsend. AFP

Newcastle hefur náð samkomulagi við Tottenham um kaupverðið á kantmanninum Andros Townsend.

Newcastle er reiðubúið að greiða 12 milljónir punda fyrir leikmanninn en sú upphæð jafngildir 2,4 milljörðum króna.

Townsed, sem er 24 ára gamall, hefur verið í herbúðum Tottenham frá árinu 2009 en hefur verið í láni hjá mörgum félögum frá þeim tíma. Hann hefur spilað 50 deildarleiki með Tottenham og þá á hann 10 leiki að baki með enska A-landsliðinu og hefur í þeim skorað 3 mörk. Hann hefur aðeins komið við sögu í þremur leikjum Tottenham í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert