Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, telur að félagið hafi ekki hafið viðræður við Portúgalann José Mourinho um að taka við liðinu í sumar.
„Þegar svona mikið rugl hefur verið skrifað um mig þá trúi ég ekki tengingunni á milli José Mourinho og United,” sagði Louis van Gaal við BBC.
Manchester United mætir Chelsea í stórleik dagsins en leikar hefjast kl. 16.00.
„Ég hef alltaf sagt að ég þurfti á samkeppni að halda, samkeppni í hverri einustu viku,” sagði Mourinho í sunnudagsblaði Daily Mail.
„Ég verð hiklaust mættur í slaginn fyrr en varir,” sagði Mourinho.
Samningur Louis van Gaal við Manchester United gildir út næstu leiktíð og þrátt fyrir fréttir um annað hyggst hann klára samning sinn.