„Þau vita hvað ég hef gengið í gegnum“

Danny Welbeck í leiknum í dag.
Danny Welbeck í leiknum í dag. AFP

Danny Welbeck, framherji Arsenal á Englandi, var í skýjunum eftir 2:1 sigur liðsins á Leicester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Enski framherjinn hefur verið frá vegna meiðsla allt tímabilið en hann var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið á þessari leiktíð.

Hann skoraði sigurmark leiksins þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum en markið var afar þýðingarmikið fyrir hann.

„Við héldum áfram að pressa á þá á lokamínútunum og við fengum endalaus tækifæri til þess að klára leikinn. Ég klúðraði fyrra tækifærinu en ég vildi bæta upp fyrir það. Það var mikilvægt að ná þessu marki og að vinna leikinn,“ sagði Welbeck.

„Þetta hefur verið andlegur rússíbani fyrir mig og erfiðir tímar hjá mér. Vinir mínir og fjölskylda vita hvað ég hef gengið í gegnum síðustu mánuði,“ sagði hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert