Áttum meira skilið úr þessum leik

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, á hliðarlínunni í leik liðsins gegn …
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, á hliðarlínunni í leik liðsins gegn Watford í dag. AFP

„Sigurganga okkar í ensku bikarkeppninni er á enda og ég er mjög leiður yfir því. Sérstaklega vegna þess að við áttum ekki skilið að falla úr leik,“ sagði Arsene Wenger á blaðamannafundi eftir 2:1 tap liðsins gegn Watford í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar á Emirates í dag. 

„Okkur tókst ekki að nýta eitt af þeim fjölmörgu færum sem við sköpuðum og það færði Watford trú á því að þeir gætu farið með sigur af hólmi. Watford varðist vel og nýtti þau fáu færi sem þeir fengu til þess að sækja hratt á okkur,“ sagði Wenger enn fremur.

„Við hefðum getað gert betur í fyrra marki Watford, en það var lítið hægt að gera í seinnar markinu. Við gerðum mistök sem urðu okkur að falli. Nú verðum við bara að snúa okkur að þeim verkefnum sem bíða okkar í vikunni,“ sagði Wenger aðspurður um hvað hefði orðið Arsenal að falli í þessum leik og um framhaldið hjá liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert