Væri frábært að fá Oxlade-Chamberlain aftur

Alex Oxlade-Chamberlain á ferðinni í leik gegn Stoke.
Alex Oxlade-Chamberlain á ferðinni í leik gegn Stoke. AFP

Portúgalski varnarmaðurinn José Fonte, sem leikur með Southampton á Englandi, hvetur fyrrverandi leikmann félagsins til að snúa heim.

Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Arsenal, hefur ekkert leikið síðustu tvo mánuði vegna meiðsla. Áður en hann meiddist átti hann í vandræðum með að halda sæti sínu í liði Arsenal og Fonte hvetur hann til að flytja frá höfuðborginni og halda suður til Southampton.

„Ég veit hversu góður hann er og hvað hann getur. Ég ætla ekki að ljúga, við höfum talað saman um mögulega endurkomu hans til Southampton,“ sagði Fonte.

„Ég talaði við hann og við erum góðir vinir en hvað get ég sagt? Hann er leikmaður Arsenal í dag. Hann er ánægður þar en ég myndi taka honum opnum örmum. Ef við ætlum okkar að berjast um titla þá væri Oxlade-Chamberlain frábær kaup,“ bætti Fonte við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert