Mousa Dembele miðvallarleikmaður Tottenham gæti fengið allt að tíu leikja bann verði hann fundinn sekur um að hafa potað viljandi í auga Diego Costa framherja Chelsea í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld.
Dembele var einn margra leikmanna Tottenham sem missti stjórn á skapi sínu. Atvikið fór framhjá Mark Clattenburg dómara leiksins en það fór ekki framhjá sjónvarpsmyndavélum og á upptöku sést þegar Dembele potar fingri í auga Costa.