Can getur spilað í kvöld

Emre Can á fullri ferð gegn Dortmund.
Emre Can á fullri ferð gegn Dortmund. AFP

Þýski miðjumaðurinn Emre Can hefur náð sér af meiðslum eftir fimm leikja fjarveru og er í hópi Liverpool fyrir seinni leikinn gegn Villarreal í undanúrslitum Evrópudeildar UEFA sem fram fer á Anfield í kvöld.

Can meiddist í leik gegn Dortmund í átta liða úrslitum keppninnar um miðjan apríl og hefur fyrir vikið misst af fimm síðustu leikjum Liverpool.

Villarreal vann fyrri leikinn á Spáni, 1:0, og stendur því vel að vígi fyrir viðureign liðanna í kvöld sem hefst kl. 19.05 að íslenskum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert