Verður Wembley heimavöllur Tottenham?

Wembley, þjóðarleikvangur Englendinga.
Wembley, þjóðarleikvangur Englendinga. AFP

Búist er við því að Tottenham Hotspur tilkynni í dag að liðið spili heimaleiki sína í Meistaradeild Evrópu á Wembley, þjóðarleikvangi Englendinga, á meðan White Hart Lane, heimavöllur liðsins, er endurbyggður.

Um 4000 sæti verða fjarlægð af White Hart Lane til að hjálpa við endurbygginguna sem er þegar hafin. Félagið fær einungis að nýta 50,800 sæti á Wembley, nema liðið mæti stórliði í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Þá yrðu öll 90,000 sæti vallarins nýtt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert