Liverpool býður í vinstri bakvörð

Raphael Guerreiro í leik með Lorient síðasta vetur.
Raphael Guerreiro í leik með Lorient síðasta vetur. AFP

Liverpool hefur lagt fram tilboð í portúgalska vinstri bakvörðinn Raphael Guerreiro sem leikur með franska félaginu Lorient. Guerreiro er í leikmannahópi portúgalska liðsins sem mætir Íslandi í lokakeppni EM í sumar.

Alex Hayes, varaforseti Lorient, staðfesti í samtali við franska fjölmiðla að tilboð hefði borist í Guerreiro, en Hayes segir að tilboðið hafi ekki verið nógu hátt og af þeim sökum hafi því verið hafnað. 

Alberto Moreno, vinstri bakvörður Liverpool, var oft og tíðum harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í vetur og þessar fregnir benda til þess að Jürgen Klopp knattspyrnustjóri sé sammála þeim gagnrýnisröddum og vilji fá aukna samkeppi um vinstri bakvarðarstöðuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert