Mourinho kynntur til leiks á morgun

José Mourinho verður líklega kynntur til leiks sem knattspyrnustjóri Manchester …
José Mourinho verður líklega kynntur til leiks sem knattspyrnustjóri Manchester United á morgun. AFP

Vel gengur að ryðja í burtu þeim hindrunum sem auglýsinga- og ímyndaréttarsamningar José Mourinho voru fyrir því að portúgalski knattspyrnustjórinn væri kynntur til leiks sem knattspyrnustjóri Manchester United.   

Jorge Mendez, umboðsmaður Mourinho, og Ed Woodward, varaformaður Manchester United, hafa fundað stíft í vikunni og góður gangur er í viðræðunum samkvæmt heimildum Skysports.

Flestir hnútar voru leystir í viðræðum Mendez og Woodward í gær og talið er að samningar muni nást í dag, en tilkynnt verði um ráðningu Mourinho áður en lokað verður á viðskipti með hlutabréf á hlutabréfamörkuðum á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert