Mourinho deilir mynd af samningnum

Jose Mourinho.
Jose Mourinho. AFP

Eins og flestum er ljóst var Portúgalinn José Mourinho ráðinn þjálfari Manchester United í dag. Eftir að hann var kynntur til leiks sem þjálfari rauðu djöflanna bjó hann til instagram-síðu og deildi þar mynd af samningi sínum við félagið.

Mourinho, sem er þrefaldur Englandsmeistari með Chelsea, og tvöfaldur Evrópumeistari með Porto og Internazionale, skrifaði undir þriggja ára samning við Manchester United. Hann setti mynd af forsíðu samningsins á glænýju Instagram-síðuna sína sem er komin með yfir 70 þúsund fylgjendur á nokkrum mínútum. 

Instagram síðu Mourinhos má sjá hér. Samningurinn er á meðfylgjandi mynd.

<div> <div></div> </div>

<a href="https://www.instagram.com/p/BF53jAGowXZ/" target="_blank">Manchester United Football Club, Old Trafford, The Theatre Of Dreams</a>

A photo posted by Jose Mourinho (@josemourinho) on May 27, 2016 at 1:35am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert