Fyrrum fyrirliði í teymi Mourinho?

Rio Ferdinand í leik með Manchester United á sínum tíma.
Rio Ferdinand í leik með Manchester United á sínum tíma. AFP

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag José Mourinho, nýráðinn knattspyrnustjóri Manchester United, hafi hug á að hafa Rio Ferdinand, fyrrum fyrirliða félagsins í þjálfarateymi sínu á Old Trafford.

Þá hefur Mourinho sömuleiðis áhuga á að halda Ryan Giggs í þjálfarateymi Manchester United, en Giggs var aðstoðarmaður David Moyes og Louis van Gaal. Rui Faria og Silvino Louro munu fylgja Mourinho til United en þeir hafa unnið með honum í mörg ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert