Mata og Blind á förum?

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Juan Mata og Daley Blind eru taldir líklegir til að verða fyrstu leikmennirnir sem José Mourinho, nýráðinn knattspyrnustjóri Manchester United, muni losa sig við þegar hann fer að smíða saman sinn fyrsta leikmannahóp hjá félaginu.

Enska blaðið Independent greinir frá þessu í dag en Mourinho skoðaði sig um á æfingasvæði félagsins í gær ásamt stjórnarformanninum Ed Woodward og goðsögninni Sir Bobby Charlton.

Chelsea, undir stjórn Mourinho, seldi Mata til Manchester United en Portúgalinn taldi sig ekki hafa not fyrir Spánverjann. Blind kom til United fyrir tveimur árum en hann var einn af fyrstu leikmönnunum sem Louis van Gaal keypti til félagsins þegar hann var ráðinn stjóri liðsins.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert