Chapman starfaði sem póstsendill ákvað nýverið að segja upp starfi hjá Royal Mail og einbeita sér að fullu að því að starfa sem tvífari Vardy. James Austin, umboðsmaður Chapman, segir skjólstæðing sinn vera í miklu uppnámi vegna viðbragða Vardy sem hafi komið honum í opna skjöldu.  

„Lee er í miklu uppnámi. Hann er gallharður stuðningsmaður Leicester City og Jamie Vardy er átrúnaðargoð hans. Lee myndi aldrei gera neitt til þess að bregða fæti fyrir Vardy eða skaða ímynd hans. Lee áttar sig ekki á því hvað olli reiði Vardy,“ sagði Austin í samtali við breska fjölmiðla.