Fjórir öruggir með stöðu sína hjá United

Leikmenn Manchester United fagna marki.
Leikmenn Manchester United fagna marki. AFP

Dwight Yorke, fyrrverandi leikmaður Manchester United, telur að aðeins fjórir leikmenn séu öruggir með stöður sínar hjá Manchester United með tilkomu knattspyrnustjórans José Mourinho.

Leikmennirnir fjórir sem Yorke telur að þurfi ekkert að óttast um sína stöðu hjá félaginu séu fyrirliðinn Wayne Rooney, markvörðurinn David de Gea og sóknarmennirnir Anthony Martial og Marcus Rashford.

Í marsmánuði lét Yorke hafa það eftir sér að ef Manchester United léti Louis van Gaal fara frá félaginu vildi hann sjá Ryan Giggs taka við liðinu en honum varð ekki að ósk sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert